Því jólin erað koma og það er svaka stuð...Sólveig Ingólfsdóttir

jólin eru að koma því við trúum öll á guð....! ;)

Jæja þá eru jólin loksins alveg að koma og ég bara nokkrum klukkutímum frá jólafríi!! Vá hvað ég get ekki beðið!!
Er í vinnunni og nánast tel niður mínúturnar þangað til ég flýg í kvöld! Verður reyndar hellings gaman í dag, Arnór Ísfeld ætlar að koma til mín í vinnuna og fara með mér á jólaball í vinnunni og sjá Jól í Oz! Það verður nú svaka fjör! ;)

En já, ég semsagt fer norður kl. 20 í kvöld og veit ekki enn hvað ég ætla að vera lengi, þarf ekki að fara að vinna aftur fyrr en 2. jan sem er æði! Verður ótrúlega næs að eiga svona langt frí, alveg 11 daga!! Verð pottþétt fyrir norðan mestan tímann, á bara aðeins eftir að ákveða með áramótin...kemur í ljós milli jóla og nýárs! En ég panta marga hittinga fyrir norðan samt! ;)

Sólveig Ingólfsdóttir

Var mætt í vinnuna kl. 6 í morgun....er allt of þreytt og með aðeins of mikla vöðvabólgu...! ái..... svo er mér líka kalt...er með rafmagnshitara í gangi og sit undir ullarteppi! ....en er samt kalt! Hálf ómöguleg eitthvað... eeeen jólaskapið nær samt að yfirgnæfa ómögulegheitin....! Með kveikt á jólalögunum! Er svo að fara á jólahlaðborð í kvöld í Perlunni! Hlakka til, fór líka í fyrra nema þá fengum við villibráðarhlaðborð! Namminamm...þetta er eitthvað góða við vinnuna mína...fæ að fara allskonar skemmtilegt út að borða... :)

Fór á tónleikana með SigurRós á sunnudaginn...það var æðislegt! Held mér hafi aldrei verið jafn mikið alveg sama um hvað ég var að drepast í fótunum og bakinu að standa svona! Þó ég væri gjörsamlega komin að því að hrynja í gólfið sökum bakverkja þá langaði mig samt bara að heyra meira! ....þetta útskýrir kannski aðeins bakverkina og vöðvabólguna í dag.......

....Þarf að vinna smá.....hendi kannski inn meira bloggi seinna....!

Allt í einu birti upp i huga minum.......Sólveig Ingólfsdóttir


Kominn tími á eina færslu!

Ennþá eru jólin efst í huga mér....! Allt jólalegt! :)

Fór í Húsdýragarðinn i dag, snjókoma og ískalt en ótrúlega hressandi! Hef ekki farið þangað siðan eg var pinulítil...! Kom svo heim og kveikti á útvarpinu og þar er byrjaði að spila jólalög...ákvað svo að grafa upp jólaskraut...á nú ekki mikið af því hérna en fann samt seríu sem ég skellti í gluggann minn.....en bara í svefnherbergisgluggann minn því Jónas yrði brjálaður ef ég myndi setja annars staðar.......! Keypti líka jólastjörnu í blómaval um daginn, rosalega flott á sófaborðinu...svo ætlar mamma að færa mér jóladúk og jólaföndur um helgina :) Hlakka til að föndra smá! ;)

Verð í 11 daga fríi um jólin! Er alsæl með það! Verður svo gott að eiga nokkra daga þar sem eg þarf ekki að gera neitt nema slappa af og hafa það gott! :) Veit samt ekki ennþá alveg hvað planið er...fer allavega norður 22. des!

Stefni á að fara samt líka einu sinni norður fyrir jól, líklegast næstu helgi!

Mig langar svo mikið að kaupa mer kort í ræktina...held ég endi í Baðhúsinu en veit ekki alveg hvað ég geri.... Langar bara svo mikið að fara að fara i ræktina! Kominn tími til!!

Á morgun ætla ég svo að fara í "ömmu og afa" kaffi á leikskólanum hjá Arnóri Ísfeld, litla krúttið hringdi i gær til að bjóða mér og Jónasi...hann á enga ömmu og afa í Reykjavík þannig að við ætlum bara að fara í staðinn! :) Verður pottþett gaman :)

Hittumst öll systkinin í mat um daginn, voða gaman...ekki svo oft sem við hittumst öll saman! Sátum svo nokkur langt fram eftir kvöldi og spiluðum og svo kíktum við í Mývetningapartý! Svaka fjör!

En jæja...ætla að fara að huga að eldamennskunni....ætla að elda bleikju...eitt af uppáhaldinu mínu! mmm! :)

Hilsen!! :)

Sólveig Ingólfsdóttir

Ég þoli ekki mánaðarmót! Þau gjörsamlega draga úr mér alla andlega orku og ég verð bara hálf þunglynd.... langar næstum að fara að grenja hérna í vinnunni.....ohh væl!

Átti loksins fríhelgi um helgina, fór á konukvöld á Ólíver á föstudag.....frekar misheppnað verð ég að segja..... og var svo með partý/hitting á laugardag, hittumst heima og spiluðum...finnst svo gaman að spila!

Er ennþá svo mikið að hugsa um jólin....í dag langar mig til dæmis bara að liggja upp í rúmi og hlusta á jólalög...!

Ehh.....held ég ætli frekar að blogga aftur seinna þegar ég er kannski í aðeins betra skapi.....frekar leiðinlegt svona!

Takk fyrir kommentin á síðasta bloggi! :)

BlogglöngunSólveig Ingólfsdóttir

Jæja loksins langaði mig að blogga aftur!

Er í jólaskapi....sit ein heima, er að laga neglurnar mínar og horfa á snjókomuna! Mig langar bara að kveikja a kertum og hlusta á jólalög.....en ég finn engan kveikjara....og reyni eftir bestu getu að hlusta ekki á jólalög strax....!!

 

Er að reyna að taka mig á í að gera neglur....eitthvað verður maður jú að gera í þessarri kreppu ha.....megið endilega auglýsa mig....ehh kjánalegt að segja þetta....

 

Reyni annars sem minnst að fylgjast með þessu....finnst þetta leiðinlegt mál og niðurdrepandi og ákvað bara að forðast þetta til að láta þetta ekki drepa mig niður!

 

Mér finnst stundum ótrúlegt að maður geti orðið einmanna í Reykjavik....það eru svo margir hérna og svo margt hægt að gera! Maður getur orðið einmanna hvar sem maður er! En líklega ætti maður alltaf að geta gert eitthvað í því en stundum þá bara er maður einmanna punktur. Stundum þarf maður örugglega bara að vera einmanna til þess að læra betur að meta alla sem maður getur verið í kringum og þið vitið.... Ég finnst ég allavega stundum vera alveg agalega alein....! Æj þið vitið...er ekkert að sökkva mér langt niður samt með þessu...bara smá pæling....

 

Stundum er heldur kannski ekki nóg að vera í kringum fólk...oft vantar eitthvað svona smá auka....en maður gerir sér það kannski bara sjálfur....aaanyways!

Ég er svo mikil félagsvera...langar alltaf að vera að gera eitthvað, hitta fólk og gera eitthvað sniðugt...finnst ekki gott að vera of mikið alein...auðvitað finnst mér það samt alveg ágætt inn á milli...en ekki of mikið...það dregur mig niður held ég....

Hey ég fór norður um seinustu helgi...hélt "ræðu" og sagði ekki virðulegi forseti! Mig bara langaði það ekki.... alls ekki það að ég hafi eitthvað á móti Ólafi Ragnari en það voru bara allir þarna gestir á samkomunni og allir jafnir ekki satt? Fólk var mishneykslað á mér....

Verð að vinna um helgina, þoli ekki að vinna um helgar.....en finnst samt svo gott líka að vera í fríi á virkum dögum....svona stundum! Ekki alltaf.... Ætla svo a Ljótu Hálfvita tónleika á Rósenberg á laugardagskvöldið og vonast til að sjá ykkur þar!

Ég hoppa bara úr einu í annað....langaði bara að blogga en vissi ekki um hvað...aðallega bara jólin held ég! Ég verð í fríi um jólin, aðfangadagur lendir samt aftur á minni vakt eins og í fyrra....en ég er frekja með þetta og sagðist ekki ætla að taka vinnunni minni án þess að fá frí á jólunum...er svo mikið jólabarn! Stefnan er tekin á að fara norður 22. des og veit ekki hvað ég verð lengi, verð að minnsta kosti í viku fríi...vonandi lengur!

Í gær var eg ekki hrifin af snjónum sem er kominn hérna....en í dag finnst mér hann fallegur....er búin að horfa ansi mikið út um gluggann herna í stofunni hjá mér!

Jæja....er ekki vön að vera væmin.....finnst þetta blogg vera alveg agalega væmið.....

Sakna ykkar útlandafararnir mínir!!

Btw.....ég leyfði mér að hlusta á jólalög á meðan ég bloggaði.....leið vel með það....en langar ekki að hætta....!

Dugleg! ;)Sólveig Ingólfsdóttir

Jæja...ég sagðist ætla að verða duglegri að blogga og þá verð ég víst AÐ blogga...! :)

Takk fyrir kommentin skvísur! ;)

Allt að fara fjandanst til skilst manni.....krónan í frjálsu falli og Glitnir "farinn á hausinn" Hvar endar þetta spyr ég nú bara?

Norðurferðir á planinu, fer norður í seinni smölun um helgina, vinn svo helgina þar á eftir og svo líklega aftur norður þar á eftir....meira um það seinna! :) Á aðeins eftir að koma í ljós með það!

Var að vinna alla helgina....ennþá jafn brjálað að gera! Endalausir útlendingar ennþá... mér finnst bara mun meira að gera núna heldur en nokkurn tíman í sumar!

Ótrúlegt hvað ég nenni samt engu þegar ég er í fríi.....búin að hanga í svo mikilli leti heima í dag....kíkti reyndar aðeins í kringluna áðan til að kaupa í matinn því ég ætla að vera geðveikt góð og elda góðan kvöldmat :) Tómatsósukarríkjúkling :) Namminamm :)

Langar svo í bíó!! Vill einhver með? :)

Anyways...ætla að byrja að elda....langar að biðja alla sem lesa þetta og hafa verið á Laugum að koma með einhverja skemmtilega minningu þaðan handa mér ;)

Tata :)

.Sólveig Ingólfsdóttir

Ég viðurkenni að ég er lélegasti bloggari sem ég veit um! Finnst eg bara aldrei hafa neitt merkilegt að segja! En ætla geðveikt að reyna að taka mig á núna! Hvað segiði um það? :)

Er í fríi í dag og ætlaði að vera þvííílíkt dugleg og fara út og gera hitt og þetta! Dreif mig loksins af stað og hitti Þórdísi frænku í búð....var ekki búin að vera þar lengi þegar mér fór allt i einu að líða ansi skringilega........leið næstum yfir mig og svimaði og svitnaði og veit ekki hvað og hvað.......dreif mig strax heim og gerði þar af leiðandi ekkert í dag nema liggja uppí sófa og horfa á sjónvarpið!!

Er orðin móttökustjóri á Hótel Sögu, er komin með email og vinnusíma.....líður allt í einu pínu fullorðinni eitthvað...en er samt alveg eins og alltaf....:p Búið að vera alveg hellingur að gera í vinnunni....alls ekki minna í september heldur en í sumar...verð samt að viðurkenna að ég er pínu farin að hlakka til nóvember...þá verður ekki eins mikið að gera og þá getur maður kannski ööörlítið slakað á!

Tókum íbúðina i gegn um helgina, máluðum og keyptum aðeins ny húsgögn og gerðum kósý :) Er rosalega ánægð með breytinguna og finnst ég loksins eiga "heima" og loksins eiga herbergi en ekki bara kompu með rúmi.... :) Sátt :)

Nýja Rósenberg er að gera góða hluti! Er orðin hálfgerður fastagestur! Elska bara lifandi tónlist og kósí staði þar sem maður getur farið og fengið sér bjór! Sé fram á að vera þar frekar mikið i vetur og vona að fleiri sjái sér fært um að mæta þangað með mér ;)

Núna eru bæði Jenný og Sirrý fluttar frá mér! Er hálf vængbrotin hérna heima en er samt svo glöð hvað gengur vel hjá þeim! Snillingar ;) ...en sakna þeirra voða mikið!

En jæja....ætla að segja þetta gott núna en ætla mér að blogga meira hér eftir! Skal skal skal!!

Skál! :)

KveðjaSólveig Ingólfsdóttir

KVEÐJA
TEXTI: BUBBI.




Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum,lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Veki þig með sól að morgni.

Drottinn minn faðir lífsins ljós.
Lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert,mín lífsins rós.
Tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Þú vekur hann með sól að morgni.

Faðir minn láttu lífsins sól.
Lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta.
Vekja hann með sól að morgni.
Vekja hann með sól að morgni.

Drottinn minn réttu sorgmæddri sál.
Svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál.
Slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Svo vaknar hann með sól að morgni.

Farðu í friði vinur minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.

Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.




Ótrúlega fallegt lag....


Hvíldu í friði elsku Bugga.


Hressleiki!Sólveig Ingólfsdóttir

Það er greinilega að koma sumar! Það er að koma sumar í veðrinu og það er í líka að koma sumar í hausnum á mér! Já mér líður bara assgoti vel eitthvað!! :D Frábært!

Er heima hjá Betu sem er í sturtu....ætlum að kíkja niður í bæ í tilefni þess að á morgun er 1. maí og ég er EKKI í fríi.....bögg! En mér er sama því ég er samt hress! ;) Að sötra smá bjór og hafa gaman, hvað er betra?? ;)

Hey það er svo langt síðan ég bloggaði seinast......hmm hvað hefur gerst?

Jú Halldór og Sigrún eru búin að skíra litlu sætustu sína! Hún heitir Hrafndís Hanna sem er svo ótrúlega flott og fer píunni bara eins vel og hægt er, lítil, dökkhærð með litla kolamola í augunum...hvað annað en Hrafndís? Svo sætt! :)

Bara nokkrar vikur í lítið kríli hjá Snæbirni og Heiðu.... maður er svoooo ríkur!! :D

Ég er búin að ákveða bara smá hluta af sumarfríinu mínu! Ætla að taka mér 12 daga frí í maí...þarf samt bara að taka 3 daga í sumarfrí af þessu.....þannig að ég mun eiga nóg eftir fyrir restina af sumrinu!

Jóhanna Björg er semsagt að flytja heim til Íslands 16. maí og þá ætla ég að bruna eftir vinnu út á flugvöll með móttökusveitina!! Á laugareginum er svo planað að hafa grillveislu með Laugaladies! ! ;) Vá hvað ég hlakka til!!!!! Elska ykkur!!!
Á sunnudeginum verður svo bruuunað norður....svona ef heilsan mun leyfa eftir partý kvöldsins áður! Vona bara að Vallý, Bjarni og Íris Embla mæti líka, já og Þórdís og bara allir!!! Hey Þórdís??? Ertu að flytja suður???? Hvernig væri að fá smá update??? ;)

Stefni svo á að vera fyrir norðan í c. viku! Helst planað að djamma smá á Ak helgina eftir?? Hverjir eru til í það??

Jæja....best að koma sér í bæinn..... og hey já!! Ég er hætt að leika! Pirringurinn var fljótur að fara....til hvers að pirra sig yfir svona kjáánahlutum!?!?

Eeeeeeen heyri í ykkur loves!!

?Sólveig Ingólfsdóttir

Ég þoli ekki að vera pirruð, en ég er svo mikið pirruð inní mér! Finnst ég samt ekki vita af hverju ég er pirruð....veit það samt og þess vegna er ég líka pirruð! Ekki bara pirruð samt....líka pínu kjánalega....ekki svona "kjánaleg" heldur líður virkilega eins og kjána!

Þarf maður alltaf að leika?

Prófíll

  • Nafn: Sólveig Ingólfsdóttir
  • Netfang: sollaing@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: laus og liðug! ;)
  • Um mig: er djammandi letipúki sem hefur gaman af lífinu! ;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...